- idea
- funding
- experiment
- finished
Heilsurækt í miðbæ Reykjavíkur þar sem áhersla er lögð á andlega vellíðan og streitulosun. Markmiðið er að skapa öruggt og afslappað umhverfi þar sem fólk getur notið þess að hreyfa sig og losað um streitu og spennu. Meginmarkmiðið er að tengja saman hreyfingu og andlega heilsu. Boðið verður upp á hóptíma en einnig verður tækjasalur þar sem fólk getur komið og æft á eigin forsendum. Hóptímar hafa það að markmiði að tengja saman hreyfingu og andlegt heilbrigði, eins og til dæmis áhrif hennar á kvíða og streitu. Boðið verður upp á slökun, yoga og hugleiðslu.
Það er skortur á aðgengi að heilsurækt miðsvæðis í Reykjavík og almennt er skortur á heilsurækt þar sem áhersla er lögð á vellíðan og andlegt heilbrigði. Það er að segja, að undanskildum jógastúdíóum. Þessi tilraun myndi skapa vettvang fyrir íbúa miðborgarinnar til að hreyfa sig í afslöppuðu umhverfi, án þess að upplifa pressu um að þeir séu á einhvern hátt ekki nóg (nógu mjóir, nógu vöðvastæltir, osfrv.). Á sama tíma er þetta vettvangur fræðslu og nýrrar sínar á líkamsrækt. Persónulega tel ég að þetta viðhorf til líkamsræktar skapi einnig stökkpall til að stunda hreyfingu til lengri tíma.
Ég er einkaþjálfari og yogakennari og ég hef mikinn áhuga á málefnum andlegrar heilsu. Sjálf hef ég töluverða reynslu af andlegri vinnu, eins og að ná tökum á kvíða og bata frá átröskunum. Ég hef einnig þjálfað ungar konur sem hafa verið að glíma við átraskanir og lágt sjálfsmat og hef fengið að sjá hvað hreyfing skiptir miklu máli þegar kemur að almennri vellíðan og andlegri heilsu. Mér finnst of mikil áhersla lögð á hreyfingu sem verkfæri til þess að breyta líkamanum. Mig langar að gefa fólki færi á að mynda ný tengsl við hreyfingu og gera það með áherslu á vellíðan, streitulosun og gleði.
Með því að finna rými og koma á fót aðstöðu til hreyfingar miðsvæðis. Áhersla verður á að skapa afslappað umhverfi, sjónvörp verða ekki til staðar til dæmis og auglýsingum haldið í algjöru lágmarki. Boðið verður upp á hóptíma þar sem hreyfing verður tengd við streitulosun, aukningu á sjálfstrausti og innri styrk sem og gleði. Boðið verður upp á fræðslu eins og um núvitund, tengsl hormónakerfisins og hreyfingar og fleira. Einnig verður boðið upp á yoga, slökun og hugleiðslu.
Aukin fræðsla til almennings um áhrif hreyfingar á hormónakerfið, sjálfsmyndina og almenna vellíðan. Skapa jákvæðara og afslappaðra viðhorf til líkamsræktar og vera hvetjandi fyrir samfélagið í heild sinni til að stunda hreyfingu. Heilsuræktarstöðvar eru vettvangur félagslífs, í heilbrigðu umhverfi sem hentar öllum.
> 1,000,000
6-12 months
Getur verið dýr framkvæmd, en hægt að lágmarka kostnað með því að fá gefins, lánuð eða seld ódýrt notuð æfingatæki. Mögulega erfitt að finna húsnæði sem hentar.
Til dæmis aðstoðað við að finna húsnæði sem myndi henta tilrauninni í miðborginni.
All projects go through this problem analysis to better define the problem and the solution.